17. september fer íþróttaskóli barna af stað aftur. Þetta er námskeið fyrir þau allra yngstu eða börn fædd 2017-2022 og er haldið í íþróttahúsi ÍFR í Hátúni 14 á laugardagsmorgnum. Áherslu er lögð á að auka skyn- og hreyfiþroska barnanna í gegnum leik. Kennarar á námskeiðinu verða þær Sunna Rut Ragnarsdóttir og Hallveig Ólafsdóttir.
Sunna Rut er íþróttafræðingur og vinnur á Landspítalanum. Hún hefur þjálfað hjá þrótti síðan 2006 og stýrði íþróttaskólanum 2015-2017. Einnig þjálfara hún hjá „Ekki gefast upp“. Hallveig snýr nú aftur sem þjálfari hjá félaginu. Þær eru svo einnig báðar fyrrverandi leikmenn
Skráning á námskeiði fer fram í gegnum Sportabler:
https://www.sportabler.com/shop/trottur/ithrottaskoli