Jelena Tinna og Kári bestu leikmenn Þróttar 2024

Þau Jelena Tinna Kujundzic og Kári Kristjánsson voru valinn bestu leikmenn Þróttar sumarið 2024, en valið var tilkynnt á lokahófi Knattspyrnudeildar laugardaginn 6. október s.l.

Brynja Rán Knudsen og Hlynur Þórhallsson voru valin efnilegustu leikmenn félagsins og einnig fengu Kristrún Rut Antonsdóttir og Kári Kristjánsson viðurkenningu fyrir að vera markahæst á tímabilinu.