Sveinn Óli kveður Þrótt.

Þróttarar, við kveðjum nú, vonandi bara í bili, einn af okkar bestu mönnum. Sveinn Óli hefur ákveðið að leita á ný mið. Sveinn Óli hefur verið hjá Þrótti alla sína tíð utan lánsdvalar hjá ÍR part úr sumri, hann hefur leikið yfir 80 keppnisleiki með meistaraflokki Þróttar. Sveinn Óli hefur fyrir utan að leika með félaginu alltaf verið boðinn og búinn til starfa fyrir Þrótt og verið mikill og góður félagsmaður og það gildir reyndar um alla hans fjölskyldu ekki síður. Við óskum Sveini Óla alls hins besta og sjáum hann vonandi í búningi Þróttar aftur.