Benóný Haraldsson hefur skrifað undir sinn fyrsta samning við Þrótt og gildir hann út árið 2026. Benóný – eða Benó – er fæddur 2005 og hefur leikið með 2.fl. félagsins undanfarin ár.
Benó er sókndjarfur miðjumaður með góða tækni, marksækinn og öflugur. Hann lék sinn fyrsta meistaraflokksleik með félaginu sl. sumar en hefur nú unnið sér fast sæti í hópnum og staðið sig vel í leikjum haustsins.
Kristján Kristjánsson, form. Knd. Þróttar segir. “Við fögnum þessu auðvitað. Benó er skemmtilegur leikmaður og bætist nú í fjölmennan og metnaðarfullan hóp ungra bráðefnilegra leikmanna Þróttar. Við efumst ekki um að hann á á eftir að láta að sér kveða í Þrótti næstu árin. #lifi