Aðalfundur Þróttar 29. maí 2025

Knattspyrnufélagið Þróttur boðar til aðalfundar félagsins fimmtudaginn 29. maí næstkomandi klukkan 15:00 í félagsheimili okkar.

Dagskrá aðalfundar er samkvæmt samþykktum félagsins.

Allir skuldlausir félagsmenn, 18 ára og eldri, sem skráðir hafa verið í félagatal a.m.k. tveimur vikum fyrir aðalfund, eru kjörgengir til stjórnarstarfa og hafa tillögu- og atkvæðisrétt á aðalfundi félagsins.

Hægt er að ganga frá greiðslu félagsgjalds á vefnum á slóðinni https://www.sportabler.com/shop/trottur/almennt/.