Þróttarar, alltaf eitthvað að frétta í vaxandi félagi. Við undirrituðum á dögunum nýjan samning við Þórhall Ísak Guðmundsson, Ladda, markvörð Þróttar, og sá gildir út árið 2027. Þórhallur gekk til liðs við Þrótt haustið 2023 og hefur staðið í marki félagsins síðan. Hann er alinn upp í FH, lék einnig með Þrótti Vogum og á að baki um 90 mótsleiki, þar af 25 leiki fyrir okkar lið í Lengjudeildinni. Þórhallur er öflugur markvörður, metnaðarfullur og hefur tekið stórstígum framförum frá því hann gekk til liðs við Þrótt. Gleðjumst á góðum degi.
Þórhallur skrifar undir nýjan samning
