Knattspyrnufélagið Þróttur boðar til aðalfundar.
📍 Staðsetning: Veislusalur Þróttar, Engjavegi 7, 104 Reykjavík
🕓 Tímasetning: Húsið opnar kl. 14:30 – fundur hefst kl. 15:00
Þróttur mun bjóða upp á léttar veitingar á fundinum og mun svo bjóða öllum fundargestum á leik Þróttar og Völsungs í Lengjudeild karla sem hefst kl. 16:00 á AVIS vellinum!
Dagskrá aðalfundar er samkvæmt samþykktum félagsins.
Allir skuldlausir félagsmenn, 18 ára og eldri, sem skráðir hafa verið í félagatal a.m.k. tveimur vikum fyrir aðalfund, eru kjörgengir til stjórnarstarfa og hafa tillögu- og atkvæðisrétt á aðalfundi félagsins.
Hægt er að ganga frá greiðslu félagsgjalds á vefnum á slóðinni https://www.sportabler.com/shop/trottur/almennt/.
Hlökkum til að sjá ykkur!