Sameiginleg yfirlýsing Knattspyrnudeilda Þróttar og Njarðvíkur

Eftir leik félaga okkar í Lengjudeildinni þann 9. júní 2025 kom til orðaskipta í leikmannagöngunum milli áhorfenda Þróttar og leikmanna Njarðvíkur. Félögin harma þessi orðaskipti og telja þau bæði óþörf og ósæmileg.

Knattspyrnudeild Þróttar biðst velvirðingar á því að gæslan í leikmannagöngunum eftir leik hafi ekki verið fullnægjandi. Bætt verður úr því af hálfu félagsins.

Vegna umræðu í kjölfar atviksins vilja félögin árétta að þau standa sameinuð gegn hvers kyns fordómum, mismunun og útilokun. Félögin leggja ríka áherslu á virðingu, jafnrétti og mannréttindi sem ófrávíkjanleg gildi í allri starfsemi. Félögin hafna afdráttarlaust allri hegðun sem byggir á neikvæðum staðalímyndum eða stuðlar að ójöfnuði, hvort sem það snýr að uppruna, kyni, kynhneigð, trúarbrögðum, fötlun eða öðrum þáttum.