Kayla Rollins til liðs við Þrótt

Bandaríski framherjinn Kayla Rollins hefur gengið til liðs við Þrótt og mun leika með kvennaliði félagsins frá og með 15. júlí, þegar félagsskiptaglugginn opnar á ný.

Kayla er mjög kröftugur framherji, bæði snögg og sterk. Hún lék síðast með Milwaukee háskólanum í Bandaríkjunum þar sem hún skoraði 18 mörk í 21 leik á síðasta tímabili og sló hvert metið á fætur öðru.

Kayla er þegar komin til landsins og mun æfa með Þrótti þar til leikheimild fæst að loknu hléi sem gert verður á Bestu deildinni vegna Evrópumóts kvenna í Sviss. Við væntum mikils af Kaylu og trúum því að  hún geri gott lið enn betra.
#LIFI