Reykjavíkurborg hættir við áform um unglingaskóla á Þríhyrningi

Knattspyrnufélagið Þróttur fagnar ákvörðun borgarráðs Reykjavíkurborgar um að falla frá fyrri áformum um þróun og byggingu svokallaðs safnskóla á unglingastigi á svæðinu sem nefnt er Þríhyrningurinn í Laugardal.

Þróttur vill koma á framfæri þakklæti til Heiðu Bjargar Hilmisdóttur borgarstjóra fyrir að hafa lagt fram tillögu þess efnis og fengið hana samþykkta hjá borgarráði. Með ákvörðuninni er stigið mikilvægt skref í átt að betra og faglegra ferli, þar sem samráð við helstu hagaðila í Laugardal er haft að leiðarljósi.

Aðalstjórn Þróttar mótmælti áformum skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar kröftuglega með bréfi til borgarráðs þann 7. janúar 2025. Þar var m.a. bent á að Knattspyrnufélagið Þróttur hefur ótímabundin og endurgjaldslaus afnot af svæðinu sem nefnt er Þríhyrningurinn, á grundvelli samnings við Reykjavíkurborg frá árinu 1996. Sá afnotaréttur er án kvaða og skal haldast svo lengi sem Þróttur starfar í Laugardal.

Þróttur tekur undir orð borgarstjóra í fréttatilkynningu borgarinnar, þar sem fram kemur að fyrri ákvarðanir hafi ekki verið byggðar á nægilega traustum grunni og að nauðsynlegt sé að vinna málið betur, með virku samráði við hagaðila í Laugardal. Samþykkt um að reisa mannvirki á lóð sem félag hefur samningsbundin afnot af, án slíks samráðs, getur ekki talist forsvaranleg stjórnsýsla. Þróttur lýsir yfir vonbrigðum með vinnubrögð skóla- og frístundasviðs í þessu máli og telur stjórnsýslu borgarinnar í ferlinu ámælisverða. Félagið fagnar þó því að borgarráð hafi nú tekið málið til endurskoðunar og ákveðið að stíga til baka, með það að markmiði að finna aðra staðsetningu fyrir unglingaskóla og hefja nýtt samráðsferli um framtíðarskipulag skóla- og íþróttamannvirkja í Laugardal.

Hér er hægt að lesa tilkynninguna frá Reykjavíkurborg frá 26. febrúar 2026.

Hér má lesa mótmæli félagsins frá 7. janúar 2025.