Sigríður Theodóra framlengir við Þrótt

Sigríður Theodóra Guðmundsdóttir hefur framlengt samning sinn við Þrótt um tvö ár. Sigríður er fædd 2005, hún hefur leikið með Þrótti undanfarin tvö ár eftir að hafa komið til félagsins frá Val. Hún hefur leikið um 60 leiki í efstu deild og á að baki 35 leiki fyrir unglingalandslið Íslands. Sigríður Theodóra hefur leikið stórt hlutverk í fyrstu leikjum Bestu deildarinnar í sumar enda bæði marksækin og kraftmikill leikmaður sem á eftir að gleðja Þróttara á næstu árum.