Þróttur x Bríet | Þróttur – Breiðablik

Kæru Þróttarar.

Risa stór leikur hjá stelpunum í Þrótti laugardaginn 16. maí!
Munu stelpurnar spila leikinn í sérstaklega framleiddum Þróttur x Bríet treyjum sem seldar verða á leiknum Match Worn.
Verður boðið upp á Half-Time Show í boði Bríetar sjálfrar svo þetta verður leikur sem engin má missa af.

Verður þetta í eina skiptið sem Þrótturum gefst tækifæri til að versla slíkar treyjur svo við hvetjum alla sem hafa áhuga á að láta sjá sig. Takmarkað upplag er á treyjum og þegar treyjur seljast upp verða treyjur selda með fyrirvara um afhendingu 14. júní.

Sala treyjanna mun renna óskert til kvennadeildar Þróttar og til iðkenda í kvennaflokkum Þróttar.

The Grapevine's New Music Picks: Bríet, russian.girls and Kaśka Paluch