Guðmundur Vignir Óskarsson, 1951-, var einn af foreldrunum, í 5.flokki, sem á Akureyri 2001, fengu þá flugu í höfuðið að það vantaði mót fyrir 4. og 3.flokk bæði í karla- og kvenna flokki. Það var ekki bara hugmyndin sem kom upp í huga þeirra, heldur skyldi Þróttur halda mótið í „Hjarta Reykjavíkur“ Laugardalnum. Fífldjörf hugmynd en það orð kom ekki upp í huga þeirra foreldra sem staddir voru á Akureyri þetta sumar. Guðmundur hafði sig mikið í frammi og þótti sjálfsagður í starf framkvæmdastjóra mótsins, sem nefnt var Rey Cup og var haldið í fyrsta sinn 2002 og verður því haldið í tuttugasta sinn á næsta ári. Guðmundur var framkvæmdastjóri mótsins til ársins 2006, ásamt því að taka að sér framkvæmdastjórastöðu Þróttar 2003 og hafði því nóg á sinni könnu um langt árabil. Guðmundur hefur verið sæmdur gullmerki Þróttar og silfurmerki KSÍ, fyrir störf sín.