Fjórir Þróttarar í U19 landsliðinu.

Fjórir Þróttarar, þær Andrea Rut Bjarnadóttir, Jelena Tinna Kujundzic, Freyja Þorvarðardóttir og Ólöf Sigríður Kristínsdóttir voru valdar í U19 landslið kvenna fyrir leiki sem til stóð að leika gegn Svíum um helgina.

Þeim hefur þó verið aflýst þar sem Svíar hættu við för sína.

Engu að síður glæsilegt hjá þessum stelpum, til hamingju.

Mumma Lú er þakkað fyrir myndirnar.