Ungir Þróttarar endurnýja samninga við félagið

Þessir ungu Þróttarar hafa á undanförnum vikum og mánuðum allir skrifað undir nýja 3ja ára samninga við félagið.

Þeir eru fæddir 2003 og 2004 og munu ef allt fer að óskum mynda kjarnann í liði Þróttar á næstu árum.

Efri röð frá vinstri; Emil Skúli Einarsson, Adrian Baarregaard Valencia, og Hinrik Harðarson. Fremri röð frá vinstri; Kári Kristjánsson, Egill Helgason, Brynjar Gautur Harðarson og Arnaldur Ásgeir Einarsson. Í þessum hópi eiga líka heima þeir Daníel Karl Þrastarson og Albert Elí Vigfússon en þeir áttu ekki heimangengt þegar Bolli Már Bjarnason smellti af þessari stórskemmtilegu mynd.