Danielle Marcano til liðs við Þrótt

Danielle Marcano hefur skrifað undir samning um að leika með Þrótti á næsta tímabili. Danielle er bandarískur sóknarmaður sem lék síðastliðið sumar með HK í Lengjudeild kvenna. Þar skoraði hún 6 mörk í 12 leikjum. Áður hefur Danielle m.a. leikið með hinu þekkta kvennaliði Tennessee háskólans þar sem hún lék með bæði Katie Cousins og MA Vignola sem báðar hafa leikið með Þrótti. Danielle á að baki góðan feril í bandarísku háskólakeppninni, hún lék 76 leiki með Tennessee liðinu og skoraði 16 mörk.

Kristján Kristjánsson, formaður knd. Þróttar segir;

„Við Þróttarar fögnum komu Danielle í hópinn okkar, hún mun styrkja hann verulega og auka samkeppni innan hans. Danielle er sóknarmaður sem við teljum að falli vel að leikstíl kvennaliðs Þróttar og hún sýndi það glöggt í leikjum HK á síðasta sumri að þarna er á ferð hörku leikmaður sem verður gaman að sjá  í Þróttarabúningnum næsta sumar.“ 

Comments are closed.