Sæunn Björnsdóttir hefur skrifað undir framlengingu á samningi sínum til tveggja ára. Eru það mikil gleðitíðindi en Sæunn spilaði 18 leiki í Bestu Deild kvenna síðastliðið sumar. Mun nýr samningur hennar gilda út árið 2027.
Kristján Kristjánsson, formaður Knattspyrnudeildar Þróttar segir: ,,Sæunn Björnsdóttir hefur verið í lykilhlutverki hjá Þrótti undanfarin ár og lék sérstaklega vel á síðasta tímabili þegar Þróttur náði sínum besta árangri í sögunni. Við leggjum áherslu á stöðugleika í leikmannahópi félagsins og trúum því að Sæunn muni sem fyrr leggja sitt af mörkum til að bæta árangur kvennaliðs Þróttar. Forsvarsmenn félagsins fagna því að Sæunn skuli hafa valið að vera áfram í Laugardalnum og við lítum björtum augum á komandi sumar.”