Leó Hrafn, efnilegur knattspyrnumaður úr yngri flokka starfi Þróttar, tekur nú þátt í æfinga- og kynningarferli hjá danska stórliðinu FC Midtjylland, en spilar hann með liðinu á Bull’s Cup í Brasilíu.
Leó er fæddur árið 2010 og hefur verið fastamaður í yngri landsliðum Íslands. Hann er örvfættur leikmaður sem leikur vinstra megin á miðjunni, þekktur fyrir mikinn kraft, góðan leikskilning og sterkan karakter á vellinum. Leó hefur vakið athygli fyrir framgöngu sína undanfarin ár og er þetta spennandi tækifæri fyrir hann til að öðlast reynslu í erlendu atvinnuumhverfi.
Þetta tækifæri er jafnframt mikil viðurkenning fyrir öflugt yngri flokka starf Þróttar í Laugardalnum. Það undirstrikar þá fagmennsku og metnað sem lagður er í uppbyggingu ungra leikmanna hjá félaginu.
Þróttur óskar Leó góðs gengis og hlakkar til að fylgjast með framvindu hans á næstu misserum.