Kári Kristjánsson er kominn heim

Þróttarar hafa náð samkomulagi um að Kári Kristjánsson snúi aftur í Þrótt eftir stutta dvöl hjá FH. Þróttarar lögðu mikla áherslu á að fá Kára aftur, enda hefur hann verið lykilmaður í mfl. karla undanfarin ár. Kári er fæddur 2004,  hann hefur leikið yfir 100 leiki með meistaraflokki Þróttar og lék sína fyrstu leiki 17 ára. Kári er kraftmikill miðjumaður,, mikill markaskorari og ekki síst gegnheill Þróttari enda hefur hann verið fyrirliði í félaginu upp alla yngri flokkana. Við bjóðum Kára velkominn aftur í Þrótt.