Þróttur hefur nú skilað hagnaði fimm ár í röð samkvæmt því sem fram kom í ræðu formanns aðalstjórnar félagsins á aðalfundi sem haldinn var síðastliðinn föstudag.
Á þessum fimm árum nemur uppsafnaður hagnaður félagsins 109 milljónum króna. Eigið fé félagsins hefur jafnframt styrkst verulega og farið úr því að vera neikvætt um 31 milljón króna í að vera jákvætt um 81 milljón króna í árslok 2025. Þegar tekið er tillit til lausafjárstöðu er félagið skuldlaust.
Í ræðu sinni lagði Bjarnólfur Lárusson, formaður aðalstjórnar Þróttar, áherslu á að fjárhagslegur árangur félagsins væri ekki aðeins mældur í tölum heldur endurspeglaði hann einnig mikla vinnu starfsfólks, þjálfara, sjálfboðaliða og allra þeirra sem koma að starfsemi félagsins.
„Þessar tölur eru ekki bara tölur í ársreikningi. Þær segja sögu um ábyrgð, aga og fórnfýsi,“ sagði formaðurinn.
Hann sagði árangurinn jafnframt sýna að félagið hefði getað byggt upp öflugt og metnaðarfullt íþrótta- og æskulýðsstarf samhliða ábyrgum rekstri.
Þróttur hefur á undanförnum árum lagt mikla áherslu á að styrkja rekstur félagsins, efla starfsemina og skapa traustan grunn fyrir framtíðina. Sú vinna hefur skilað sér í sterkari fjárhagsstöðu og auknum gæðum í starfi félagsins.
Samkvæmt formanni er það sameiginlegt verkefni allra Þróttara að standa vörð um þann árangur sem náðst hefur og tryggja að félagið verði áfram öflugt samfélagsafl í Laugardal.
Leave a Reply