Þróttur vann N1 mótið á Akureyri

5. flokkur karla hjá Þrótti vann N1 mótið á Akureyri um liðna helgi, í fyrsta sinn í sögu félagsins. Liðið fór taplaust í gegnum mótið og sigraði ÍA í úrslitaleiknum og tryggði sér þar með glæsilegan mótssigur á fertugasta N1 mótinu.

Þróttur sendi alls 9 lið til leiks sem stóðu sig með miklum sóma, bæði innan vallar sem utan. Mótið var afar vel heppnað og sýndu Þróttararnir baráttugleði, liðsheild og góðan fótbolta alla helgina.

Þessi árangur er sérstaklega ánægjulegur enda hefur þessi öflugi leikmannahópur áður náð frábærum árangri. Fyrir tveimur árum varð sami hópur sigurvegari á Orkumótinu í Vestmannaeyjum og hefur því nú unnið tvö af stærstu knattspyrnumótum landsins fyrir sinn aldursflokk.

Einnig má geta þess að þessi sigur kemur í kjölfar sigurs 5. flokks kvenna á TM-mótinu í Vestmannaeyjum á dögunum. Þessi glæsilegi tvöfaldi árangur er lifandi vitnisburður um öflugt og metnaðarfullt yngri flokka starf Þróttar.

Innilega til hamingju leikmenn, þjálfarar, foreldrar og allir sem komu að þessum glæsilega árangri.

Leikmenn liðsins eru: Garðar Freyr Gunnlaugsson, Grímur Halldórsson, Guðmundur Bjarni Andrason, Hlynur Hallsson, Jökull Ægir Gíslason, Jón Kormákur Jarl Gunnarsson, Jónas Rafn Jörundsson og Kristinn Þór Sigurðsson.

Lifi Þróttur!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>