Knattspyrnudeild Þróttar og Pepsi hafa gert með sér nýjan samstarfssamning sem felur meðal annars í sér að heimavöllur Þróttar fær nýtt nafn. Frá og með deginum í dag mun völlurinn bera nafnið Pepsi-völlurinn.
Samstarfið markar spennandi skref fyrir Þrótt og er liður í áframhaldandi uppbyggingu félagsins. Pepsi verður sýnilegt á heimavelli Þróttar og mun samstarfið setja svip sinn á umgjörðina í kringum leiki og viðburði félagsins.
„Við erum virkilega ánægð með að bjóða Pepsi velkomið í Þrótt. Það er mikill kraftur í félaginu um þessar mundir og samstarf af þessu tagi hjálpar okkur að halda áfram að byggja upp sterka umgjörð í kringum liðin okkar, stuðningsfólk og starf félagsins,“ segir Jón Hafsteinn, Framkvæmdarstjóri Þróttar.
Pepsi-völlurinn verður áfram hjarta knattspyrnustarfs Þróttar í Laugardalnum og heimavöllur þar sem Þróttarar koma saman, hvort sem er á leikjum meistaraflokka, yngri flokka eða öðrum viðburðum félagsins.
Við hlökkum til samstarfsins og til að skapa margar eftirminnilegar stundir á Pepsi-vellinum á komandi árum.
Nýtt nafn. Sami heimavöllur. Pepsi-völlurinn.
Leave a Reply