Þróttarar, iðkendur, forsvarsmenn, nágrannar, gott fólk.
Það er að hefjast hjá okkur sannkölluð risa-vika. Mfl. kvenna leikur lokaleik sinn í hefðbundinni Bestu deildar keppni í kvöld, Mfl. karla byrjar þátttöku sína í umspili Lengjudeildarinnar í Njarðvík á miðvikudag, stelpurnar mæta aftur til leiks í Bikarúrslitum á laugardag og á sunnudaginn er seinni umspilsleikurinn hjá strákunum. Nánari upplýsingar og tímasetningar eru á heimasíðu Þróttar og í auglýsingum.
Nú skiptir máli að fá sem flesta á völlinn, fullorðna og börn, alla Þróttara, pabbi þinn og mamma eru Þróttarar, taktu þau með á Pepsi-völlinn okkar, á Laugardalsvöllinn og í Njarðvík. Við höldum hátíð á Þróttarvellinum fyrir bikarúrslitaleikinn og eins fyrir síðari umspilsleik strákanna, þeir sem vilja hjálpa til við undirbúning og framkvæmd alls þessa eru sannarlega velkomnir, best að hafa samband við skristofuna. Fyrir hönd knd. Þróttar þá heiti ég á ykkur öll og treysti á ykkur öll í stuðningi við liðin okkar. Koma so! lifi#
kk
KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
Formaður/Chairman
Knattspyrnudeild Þróttar
Leave a Reply