Þróttarar í landsliðsverkefnum

Bríet Fjóla Bjarnadóttir og Björgey Njála Andreudóttir, hafa verið valdar í U17 ára landslið kvenna sem tekur þátt í fyrri umferð undankeppni EM 2027. Ísland er þar í riðli með Kasakstan, Tékklandi og Þýskalandi en leikið verður í Þýskalandi dagana 9. – 15. október. Fyrsti leikur þeirra verður 9. október gegn Tékkum áður en þær spila við sjálfa Þjóðverja þann 12. október. Riðlinum lýkur svo þann 15. október þegar þær mæta Kasakstan.

„Fjölnir Freysson og Leó Hrafn Elmarsson eru þessa dagana staddir með U17 ára landsliði Íslands í Bosníu þar sem undanriðill Evrópumótsins fer fram. Ísland vann sigur á Gíbraltar í fyrsta leik og unnu svo góðan sigur á Bosníu sem þýðir að liðið leikur úrslitaleik um efsta sæti riðilsins við Grikkland á morgun í lokaumferðinni. Frábær árangur hjá strákunum. Leó Hrafn hefur byrjað báða leikina í riðlinum í stöðu vinstri bakvarðar og Fjölnir kom inn á sem varamaður í sigrinum gegn Bosníu“

Hlynur Þórhallsson stendur í ströngu með U21 liði Íslands en hann lék 82 mínútur í 1-1 jafntefli gegn Frökkum á Pepsí-vellinum á föstudaginn. Hann mun án efa standa vaktina gegn Sviss á morgun en leikurinn er sannkallaður úrslitaleikur um 2. sætið í riðlinum sem gefur sæti í umspili fyrir lokakeppni U21 árs landsliða sem fer fram í Albaníu og Serbíu. Við hvetjum alla á völlinn til að hvetja íslenska liðið og okkar mann. Framundan er svo útileikur gegn Færeyjum þann 6. október næstkomandi.

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>