Nú er Íslandsmótinu lokið hjá yngstu flokkum félagsins og er vert að benda á glæsilegan árangur okkar iðkenda. 5. flokkur karla og kvenna náði glæsilegum árangri á Íslandsmótinu og fór með 9 lið af 12 í úrslitakeppnina eftir frábært sumar.
Hjá strákunum fóru sex lið í úrslitakeppnina og sýndi strákarnir frábær tilþrif. F-lið Þróttar tapaði fyrir Aftureldingu í undanúrslitum 2-5 á heimavelli í hörkuleik. C-lið Þróttar tapaði í spennuþrungnum leik fyrir KA 5-7 á heimavelli eftir að hafa leitt lengst af.
Þróttur landaði þremur Íslandsmeistaratitlum í 5. flokki karla.
Það voru tvö Þróttaralið sem mættust í innbyrðis úrslitaleik í keppni E-liða á Pepsí-vellinum að viðstöddu fjölmenni. Eftir framlengdan leik tryggði Þróttur 5 sér sigur með síðustu spyrnu leiksins eftir hornspyrnu. Ótrúlegur leikur hjá þessum frábæru liðum. Þróttur sigraði í D-liða keppni Íslandsmótsins eftir öruggan 5-0 sigur á HK á Pepsí-vellinum. Þróttur réði lögum og lofum allan tímann og fóru í gegnum Íslandsmótið taplausir. Frábær árangur. Þróttur sigraði svo B-liða keppni Íslandsmótsins eftir stórsigur á Fylki 4-0 á Tekk-vellinum. Þróttur voru talsvert sterkari í leiknum en leiddu lengst af 1-0 en sigldu fram úr í síðasta fjórðungnum og unnu sannfærandi 4-0 sigur. 5. flokkur kvenna fór með þrjú af fjórum liðum sínum í úrslit Íslandsmótsins sem er stórkostlegur árangur og sýndu stelpurnar frábæra spilamennsku. A-lið Þróttar tapaði grátlega í undanúrslitum fyrir Breiðablik 4-2 eftir framlengdan leik eftir að hafa verið yfir 2-1 allt fram á síðustu mínútu leiksins. Í framlengingunni náðu Blikar að sigla fram úr og lönduðu 4-2 sigri. Frábær árangur hjá stelpunum samt sem áður en þær unnu ™ mótið fyrr í sumar. B-lið Þróttar gerði sér lítið fyrir og urðu Íslandsmeistarar eftir 3-2 sigur á flóðlýstum Pepsí-vellinum. Valsstelpur komust 2-0 yfir í fyrri hálfleik og þrautseigja er eitt af gildum Þróttar og gerðu okkar stelpur sér lítið fyrir og sneru leiknum sér í vil og unnu frábæran 3-2 sigur. D-lið Þróttar fór alla leið í undanúrslit Íslandsmótsins en þurftu því miður að lúta lægra haldi fyrir Fram í flottum leik í Úlfarsárdal. Framstelpur reyndust sterkari í þessum leik og unnu 4-0 sigur en engu að síður glæsilegur árangur stelpnanna að fara alla leið í undanúrslit. Þjálfarar 5. flokks karla og kvenna voru þau Kristján Karl Pétursson, Þórkatla María Halldórsdóttir, Abraham Amin, Sveinn Þorkell Jónsson, Hlynur Þórhallsson, Pétur Axel Pétursson og Ýmir Hálfdánsson.
4. flokkur kvenna náðum góðum árangri í sumar og vann A-lið félagsins sér sæti í A-deild á næsta tímabili.
B og C-lið Þróttar fóru bæði í úrslitakeppnina þar sem þau biðu því miður ósigur gegn FH. B-liðið tapaði 6-0 gegn FH á útivelli og C-liðið tapaði 6-2. FH reyndist vera of stór biti til að kyngja að þessu sinni en virkilega vel gert að fara í undanúrslit á Íslandsmótinu. Þjálfarar 4. flokks kvenna voru þeir Sveinn Þorkell Jónsson og Sigurður Sigurðsson.
4. flokkur karla lauk leik á Íslandsmótinu á dögunum eftir afskaplega gott sumar. A-liðið lauk leik í 3. sæti á Íslandsmótinu í A-deild og voru hársbreidd frá því að tryggja sér silfurmedalíu í lokaleik gegn HK en lokatölur urðu 3-3. Fjögur af fimm liðum 4. flokks fóru í úrslitakeppnina sem er frábær árangur. Þess má geta að D2 varð í 2. sæti í sínum riðli en komst þrátt fyrir það ekki í úrslitakeppnina. Virkilega góður árangur hjá þeim. B-liðið tapaði í undanúrslitum fyrir Val 3-6 í hörkuleik í blíðskaparveðri á Pepsí-vellinum og D-liðið tapaði 0-3 fyrir HK sömuleiðis á Pepsí-vellinum. Glæsilegur árangur hjá þessum tveimur liðum. C-liðið gerði sér lítið fyrir og fór alla leið í úrslitaleik eftir sannkallaða maraþon úrslitakeppni þar sem liðið lagði Víking og Breiðablik í vítaspyrnukeppnum á leið sinni í úrslitaleikinn. Úrslitaleikurinn var spilaður í Kórnum þar sem HK reyndist á endanum sterkara eftir vaska framgöngu okkar drengja. Virkilega flottur árangur hjá þessu öfluga liði. Þjálfarar 4. flokks karla eru þeir Kristján Karl Pétursson, Ingvi Sveinsson og Emil Davíðsson. Framtíðin er björt í Laugardalnum og sýndu iðkendur okkar frábæra frammistöðu og voru félaginu til sóma, innan vallar sem utan.
Leave a Reply