Caroline tekur við U19 ára landsliði kvenna

Caroline Van Slambrouck lætur af störfum hjá Þrótti og tekur við sem aðalþjálfari U19 ára landsliðs kvenna hjá KSÍ. Samhliða því mun hún gegna hlutverki aðstoðarþjálfara U16 og U17 ára landsliða kvenna.

Caroline hefur undanfarin tvö ár starfað við þjálfun hjá Þrótti og lagt sitt af mörkum til uppbyggingar yngri flokka félagsins og þá hefur einnig komið að verkefnum yngri landsliða KSÍ.

Hjá Þrótti er lögð mikil áhersla á metnaðarfullt þjálfunarstarf. Félagið lítur á ráðningu Caroline til KSÍ sem viðurkenningu á hennar góðu störfum og því öfluga starfi sem unnið er innan Þróttar.

Caroline mun áfram verða félaginu innan handar og styðja við verkefni sín á meðan unnið er að því að finna arftaka hennar.

Kveður með þakklæti og stolti

Caroline sendir samstarfsfólki og leikmönnum hlýjar kveðjur við þessi tímamót:
„I would like to thank Þróttur for the past two years. The club has been an incredible and positive working environment that allowed me to grow and learn from the staff and the wonderful coaches. I appreciate the support and laughs I had with everyone, and I’ll look back on my time at Þróttur with happiness and pride. I will continue to support my projects to the best of my ability until a replacement has been found. 

I would especially like to thank all of the players I coached. Their willingness to learn and grow has led to my success as a coach. I recognise that and sincerely thank them for their hard work. I will be following their careers with great interest  LIFI!“

Þýðing;

„Ég vil þakka Þrótti fyrir síðastliðin tvö ár. Félagið hefur verið frábær og jákvæður vinnustaður þar sem ég hef fengið tækifæri til að vaxa og læra af starfsfólkinu og þeim yndislegu þjálfurum sem þar starfa. Ég er þakklát fyrir stuðninginn og allar hláturstundirnar og mun líta til baka á tímann minn hjá Þrótti með gleði og stolti. Ég mun áfram styðja við verkefnin mín eftir bestu getu þar til arftaki hefur verið fundinn.

Ég vil sérstaklega þakka öllum leikmönnunum sem ég hef þjálfað. Vilji þeirra til að læra og taka framförum hefur átt stóran þátt í mínum árangri sem þjálfari. Ég þakka þeim af einlægni fyrir þeirra miklu vinnu. Ég mun halda áfram að fylgjast með framvindu þeirra af miklum áhuga. LIFI!“

Þróttur þakkar Caroline kærlega fyrir hennar framlag til félagsins og óskar henni velfarnaðar í nýjum og spennandi verkefnum hjá KSÍ.

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>