Sölvi Björnsson að láni frá Gróttu

Þróttur hefur fengið framherjann Sölva Björnsson að láni frá Gróttu út tímabilið og kom hann við sögu í leik liðsins gegn Þór s.l. laugardag.   Sölvi, sem er 21 árs gamall,  er uppalinn KR ingur en gekk til liðs við Gróttu frá KR í lok árs 2017 og á að baki 36 leiki með félaginu í deild og bikar og hefur skorað í þeim 17 mörk.  Við bjóðum Sölva velkominn í Hjartað í Reykjavík. Lifi…! 👊