Lára okkar hóf störf fyrir Þrótt árið 2005 í félagsheimili Þróttar og vakti strax athygli fyrir röska framkomu og dugnað. Í gegnum árin hafa Þróttarar getað leitað til Láru með ýmis mál, enda ráðagóð og úrræðasöm. Í hinum stundum karllæga heimi sem íþróttafélög eru, er gott að hafa manneskju sem sér hlutina frá öðru sjónarhorni.
Auk starfa fyrir Þrótt þá hefur Lára Dís verið virk í félagsstarfi eins og störf hennar í HM hópnum bera glöggt vitni. Mest allur undirbúningur og tiltekt vegna „Lambalæri að hætti mömmu“ lendir á henni.
Lára Dís hefur verið sæmd silfurmerki Þróttar fyrir störf sín.
Takk fyrir okkur elsku besta Lára.
Lifi Lára og Lifi Þróttur.