Aðalfundur Þróttar verður haldinn 19. október

Aðalfundur Knattspyrnufélagsins Þróttar verður haldinn 19. október næstkomandi í félagsheimilinu að Engjavegi 7 kl. 19:00. Dagskrá aðalfundar er samkvæmt samþykktum félagsins.

Allir skuldlausir félagsmenn, 18 ára og eldri, sem skráðir hafa verið í félagatal a.m.k. tveimur vikum fyrir aðalfund, eru kjörgengir til stjórnarstarfa og hafa tillögu- og atkvæðisrétt á aðalfundi félagsins. Hægt er að ganga frá greiðslu félagsgjalds á vefnum á slóðinni https://www.sportabler.com/shop/trottur/almennt/.