Íþróttamaður ársins og viðurkenningar 2022

Íþróttamaður Þróttar 2022 verður tilkynntur við hátíðlega athöfn í Þróttarheimilinu sunnudaginn 18. desember klukkan 13:00. Á sama tíma verða félagsmenn heiðraðir fyrir störf í þágu Þróttar. Þróttari ársins verður einnig tilkynntur en þá er litið til einstaklings sem verið hefur góð fyrirmynd sem hefur gefið af sér í sjálfboðaliðastörfum fyrir félagið á árinu sem er að líða.

Á dagskrá síðar um daginn verður svo úrslitaleikur HM sem sýndur verður hátíðarsal félagsins.

Við vonum að félagsmenn komi og fjölmenni á báða þessa viðburði.