Þróttari ársins 2022

Ár hvert er Þróttari ársins valinn úr röðum félagsmanna. Við valið er litið til þess að viðkomandi sé góð fyrirmynd og hafi gefið af sér í sjálfboðaliðastörfum fyrir félagið á árinu sem er að líða. Ásmundur Helgason hlýtur titilinn í ár.

Ásmundur er uppalinn í Glaðheimum því mikla Þróttarahverfi og hefur verið öflugur stuðningsmaður Þróttar alla tíð. Persóna hans og andlit er nátengt félaginu úti í samfélaginu og má segja að jákvæði hans og brosmildi endurspegli svolítið félagið. Ásmundur hefur setið í stjórnum félagsins og er mikilvægur sendiherra félagsins. Auk trúnaðarstarfa hefur Ásmundur verið mikilvægur þátttakandi í fjáröflun félagsins í gegnum Kaupfélagið þar með talið skipulagningu á Sveitaballinu sem uppselt var á fyrr á þessu ári. Á knattspyrnuferli sínum spilaði Ásmundur 109 leiki fyrir m.fl. Þróttar og hefur hlotið Silfur- og Gull merki Þróttar, silfurmerki KRR og silfurmerki KSÍ.

Til hamingju Ási!

F.h. Þróttari ársins, Ásmundur Helgason ásamt knattspyrnumanni og íþróttamanni ársins, Írisi Dögg Gunnarsdóttur og blakara ársins Elísabetu Nhien Yen Huynh.