Sierra Marie Lelii til liðs við Þrótt á ný

Sierra Marie Lelii hefur gengið til liðs við Þrótt á nýjan leik og skrifað undir samning um að leika með félaginu á komandi tímabili. Sierra lék síðast með Þrótti í næst efstu deild árið 2017 og er ein af mörgum eftirminnilegum knattspyrnukonum sem Nik Chamberlain hefur fengið til liðs við Þrótt. Sierra átti frábæran feril í bandaríska háskólaboltanum og átti sömuleiðis hörku sumar hjá Þrótti, lék þá 18 leiki og skoraði 7 mörk en gekk síðan til liðs við Hauka. Sierra settist að á Íslandi og hefur búið hér allar götur frá því hún kom hingað fyrst. Hún hefur í heild leikið 56 leiki á Íslandi og skorað í þeim 29 mörk. Hún hefur æft með mfl. Þróttar undanfarna mánuði, staðið sig mjög vel og mun styrkja hópinn verulega í sumar. Bjóðum hana velkomna í Þrótt á ný.