Sierra Marie Lelii framlengir við Þrótt

Sierra Marie Lelii

Sierra Marie Lelii hefur skrifað undir samning um að leika áfram með Þrótti á næsta ári. Sierra átti mjög gott tímabil með Þrótti í sumar sem leið þegar hún ákvað að að snúa aftur í fótbolta eftir að hafa lítið leikið árin á undan. Sierra er framherji sem hefur gert 36 mörk í rúmum 80 keppnisleikjum á Íslandi, frá því hún kom fyrst til Þróttar á árinu 2017 úr bandarísku háskólaknattspyrnunni. Þróttarar fagna því að hún verði áfram mikilvægur hlekkur í öflugu liði. #lifi