Daníel Karl endurnýjar samning við Þrótt

Daníel Karl Þrastarson

Daníel Karl Þrastarson hefur skrifað undir nýja samning um að leika með Þrótti næstu 3 árin. Daníel er fæddur 2004 og hefur leikið með Þrótti upp alla yngri flokka. Hann var einn lykilmanna í sterku liði 2. flokks síðastliðið sumar og miklar vonir bundnar við hann. Daníel er eitilharður bakvörður sem hefur jafn gaman af að sækja og verjast, nútíma leikmaður, fljótur og áræðinn. Samningur Daníels Karls og Þróttar er í samræmi við stefnu félagsins um að byggja framtíðina á uppöldum leikmönnum með sterkar rætur í Þrótti.