Hans Sævar Sævarsson aðstoðar Sigurvin í mfl. karla

Hans Sævarsson

Hans Sævarsson hefur skrifað undir 3ja ára samning um að aðstoða Sigurvin Ólafsson við þjálfun meistaraflokks karla. Hans er gamalkunnur og gegnheill Þróttari, lék lengi með félaginu og þjálfaði einnig yngri flokka. Hann hefur einnig þjálfað hjá Breiðabliki og KR svo dæmi séu tekin og þeir félagar hafa áður unnið saman með góðum árangri að þjálfun. Þróttarar bjóða Hansa velkominn í Laugardalinn á nýjan leik og vænta mikils af starfi hans í meistaraflokki karla.