Eiríkur Þorsteinsson Blöndal hefur skrifað undir nýjan samning við Þrótt og verður hjá félaginu út árið 2026. Eiríkur er fæddur 2001, alin upp í Breiðabliki en hefur verið lykilmaður í Þrótti frá frá því 2021. Eiríkur hefur varla misst úr leik frá því hann gekk til liðs við Þrótt, hann hefur leikið yfir 100 keppnisleiki með félaginu, verið fyrirliði liðsins á þessu ári og því tekið að sér æ stærra hlutverk, bæði innan og utan vallar.
Kristján Kristjánsson, formaður Knattspyrnudeildar Þróttar segir: „Eiríkur hefur sannarlega blómstrað hjá Þrótti, hann hefur verið einn besti leikmaður liðsins undanfarin ár og frammistaða hans hefur vakið verðskuldaða athygli. Við höfum lagt mikla áherslu á að framlengja við okkar bestu menn og þessi samningur við Eirík er okkur gríðarlega mikilvægur.“