Þróttur R. sigraði TM mótið í Vestmannaeyjum um helgina, í fyrsta sinn í sögu Þróttar. Lið Þróttar fóru taplausar gegnum mótið og sigruðu svo að lokum Aftureldingu í úrslitaleik á Hásteinsvelli, 4-0. Þær skoruðu 27 mörk og fengu 7 mörk á sig á mótinu. Leikmenn liðsins eru Alexandra Lyngberg Andradóttir, Aníta Eir Vilmarsdóttir, Birgitta Steinunn Arnórsdóttir, Erla Karitas Guðmundsdóttir, Iðunn Helga Ágústsdóttir, Steinunn Klara Hilmarsdóttir, Una G. Brynjudóttir Valsdóttir og Unnur Ebba Birgisdóttir.
Þróttur sendi 5 lið til leiks, 42 frábærar fótboltastelpur sem spiluðu flottan fótbolta í blíðunni í eyjum og voru Þrótti til mikils sóma. Þjálfarar liðsins eru Kristján Karl Pétursson, Sveinn Þorkell Jónsson, Þórkatla María Halldórsdóttir og Abraham Amin Chebout.
Leave a Reply