Á aðalfundi Þróttar rifjaði formaður félagsins upp svokallað Þríhyrningsmál sem varð til þegar Reykjavíkurborg hóf undirbúning að byggingu um 8.000 fermetra skóla á svokölluðu Þríhyrningssvæði án samráðs við félagið.
Þróttur mótmælti þeim áformum harðlega frá upphafi og taldi að þau gætu haft neikvæð áhrif á aðstöðu félagsins og starfsemi þess.
Tveimur árum síðar staðfesti borgarlögmaður það sem Þróttur hafði haldið fram frá upphafi; að virða bæri samning félagsins við Reykjavíkurborg og að breytingar mættu ekki leiða til lakari aðstöðu fyrir Þrótt.
Í ræðu sinni sagði Bjarnólfur Lárusson, formaður aðalstjórnar Þróttar, að niðurstaðan hefði verið mikilvæg tímamót fyrir félagið.
„Ekki vegna þess að Þróttur vann deiluna heldur vegna þess að þar var staðfest grundvallarregla: að samningar sem gerðir eru við íþróttafélög séu ekki bara falleg orð á blaði heldur skuldbindingar sem ber að virða,“ sagði formaðurinn.
Þróttur telur niðurstöðuna mikilvægt fordæmi í samskiptum sveitarfélaga og íþróttafélaga. Hún undirstrikar mikilvægi þess að íþróttafélög fái raunverulega aðkomu að ákvörðunum sem varða aðstöðu þeirra, framtíð og starfsemi.
Félagið hefur ítrekað lagt áherslu á að samningar við Reykjavíkurborg og önnur samkomulög séu hornsteinn starfsemi félagsins. Því sé nauðsynlegt að þeir séu virtir í verki, ekki aðeins í orði.
Þróttur mun áfram standa vörð um réttindi félagsins og þá aðstöðu sem nauðsynleg er til að sinna íþrótta- og æskulýðsstarfi í Laugardal.
Leave a Reply