Dagana 11.–19. júlí tók 85 manna hópur frá Þrótti þátt í Gothia Cup í Gautaborg. Hópurinn samanstóð af leikmönnum, þjálfurum og fararstjórum í 3. flokki karla og kvenna og sendi félagið alls fimm lið til keppni; þrjú í karlaflokki (U16, U16 2 og U15) og tvö í kvennaflokki (U16 og U16 2).
Það var sannkölluð gul (sólar) viðvörun sem tók á móti Þrótturum í Gautaborg, þar sem sólin lét ekki undan alla vikuna og hitinn fór reglulega yfir 27 stig, var bilinu 25-30 stig. Vegna hitans voru reglulegar vatnspásur í leikjum sem reyndust afar mikilvægar fyrir leikmennina við krefjandi aðstæður. Þrátt fyrir mikinn hita var stemningin frábær og aðstæður til knattspyrnuiðkunar að öðru leyti með besta móti.
Árangur Þróttarliðanna var afar góður í heildina og öll liðin sýndu mikla baráttu, samheldni og þrautseigju í sterkri alþjóðlegri keppni.
U16 lið karla náði frábærum árangri og komst alla leið í 16 liða úrslit A-keppninnar. Þar lauk för liðsins eftir glæsilega spilamennsku og frammistöðu meðal 256 þátttökuliða.
U16 2 liðið féll úr leik í fyrstu umferð í B-úrslitum, eftir hetjulega baráttu. Úrslitin réðust á lokamínútunum í jöfnum og spennandi leik. U15 liðið féll sömuleiðis úr leik í fyrstu umferð í B-úrslitum með marki á lokasekúndu leiksins, sárgrætilegt.
Kvennaliðin stóðu einnig fyrir sínu. U16 lið kvenna vann B-úrslitin með glæsibrag, spilaði alls átta leiki og tapaði aðeins einum leik á öllu mótinu. Úrslitaleikurinn gegn Oppsal frá Noregi fór fram á glæsilegum heimavelli BK Häcken, Nordic Wellness Arena, þar sem Þróttarstúlkur fögnuðu sannfærandi 3–1 sigri. U16 2 kvenna fór einnig í B-úrslit en féll úr leik í fyrstu umferð eftir góða frammistöðu og hetjulega baráttu.
Það er óhætt að segja að þessi glæsilegi hópur úr Laugardalnum hafi verið félaginu og hverfinu til mikils sóma. Leikmenn, þjálfarar og fararstjórar sýndu kurteisi, jákvætt hugarfar og framúrskarandi framkomu í hvívetna og voru Þrótti til fyrirmyndar jafnt innan sem utan vallar. Samheldni og stuðningur leikmannanna þvert á öll liðin vakti einnig sérstaka athygli. Krakkarnir lögðu oft á sig löng ferðalög um Gautaborg þvera og endilanga til að hvetja hvert annað og styðja við bakið á félögum sínum, óháð því hvaða lið var að spila. Það sýndi svo ekki verður um villst að hér er á ferðinni einstaklega samheldinn hópur þar sem liðsheild, vinátta og hinn sanni Þróttarandi voru í fyrirrúmi.
Spilamennska Þróttarliðanna vakti einnig verðskuldaða athygli. Liðin léku metnaðarfullan, skemmtilegan og vel útfærðan fótbolta sem endurspeglar enn og aftur þá öflugu uppbyggingu sem átt hefur sér stað hjá Þrótti undanfarin ár. Frammistaða leikmannanna á stærsta og fjölmennasta knattspyrnumóti heims fyrir ungmenni sýnir að framtíð félagsins er björt og að það öfluga starf sem unnið er í Laugardalnum er að skila sér, jafnt innan vallar sem utan.


Leave a Reply