Þórður Einarsson, yfirþjálfari Knattspyrnufélagsins Þróttar, lætur nú af störfum hjá félaginu eftir farsælt starf á undanförnum árum.
Þórður hefur gegnt mikilvægu hlutverki í uppbyggingu barna- og unglingastarfs félagsins og lagt sitt af mörkum við að styrkja faglegt umhverfi leikmanna, þjálfara og starfsins í heild. Á þeim tíma sem Þórður hefur starfað hjá félaginu hefur félagið náð eftirtektarverðum árangri í barna- og unglingastarfi. Þar má sérstaklega nefna aukinn fjölda leikmanna úr röðum Þróttar sem hafa verið valdir í unglingalandslið Íslands.
Þá hefur einnig verið ánægjulegt að sjá hvernig fleiri iðkendur úr yngri flokkum félagsins hafa skilað sér áfram inn í meistaraflokka félagsins. Sú þróun endurspeglar það öfluga starf sem unnið hefur verið innan félagsins og þann grunn sem lagður hefur verið að frekari uppbyggingu til framtíðar.
Ennfremur vill félagið þakka Þórði sérstaklega fyrir aðkomu hans að einstaklega vel heppnuðum framkvæmdum við Þróttheima og aðalvöll félagsins á starfstíma hans hjá félaginu. Mikill sómi er af þeim framkvæmdum, enda hafa þær heppnast einstaklega vel í alla staði og eru mikilvægur liður í áframhaldandi uppbyggingu félagsins.
Knattspyrnufélagið Þróttur vill koma á framfæri innilegu þakklæti til Þórðar fyrir vel unnin störf, metnað, fagmennsku og framlag hans til félagsins. Við óskum honum velfarnaðar í framtíðinni og þökkum fyrir samstarfið.

Leave a Reply