Yfirþjálfari ber ábyrgð á faglegri uppbyggingu barna-, unglinga- og afreksstarfs félagsins, samræmingu þjálfunar og þróun leikmanna og þjálfara. Um er að ræða lykilhlutverk í að móta jákvætt, öruggt og metnaðarfullt knattspyrnuumhverfi þar sem iðkendur fá tækifæri til að þroskast bæði sem leikmenn og einstaklingar.
Starfið byggir á heildstæðri þjálfunar- og leikmannastefnu Þróttar frá yngstu flokkum til meistaraflokka, með áherslu á faglegt og metnaðarfullt starf.
Yfirþjálfari skal stuðla að öruggu og jákvæðu íþróttaumhverfi og eiga góð samskipti við iðkendur, þjálfara, forráðamenn, stjórnendur og aðra hagaðila félagsins.
Helstu verkefni
Yfirþjálfari ber ábyrgð á að þróa og fylgja eftir kennsluskrá félagsins fyrir þjálfun yngri flokka, skilgreina áherslur í þjálfun og hafa umsjón með skipulagi æfinga og æfingatímabila.
Yfirþjálfari ber ábyrgð á þjálfun yngri flokka og starfsþróun þjálfara, þar á meðal að móta og innleiða þjálfunarstefnu félagsins, annast þjálfararáðningar og styðja þjálfara við gerð æfingaáætlana, markmiðssetningu og eftirfylgni.
Yfirþjálfari ber ábyrgð á að leiða og þróa afreksstarf félagsins og stuðla að einstaklingsmiðaðri þróun efnilegra leikmanna með markvissri og mælanlegri eftirfylgni og tryggja skýra tengingu milli yngri flokka, afrekshópa og meistaraflokka félagsins.
Hæfniskröfur
· KSÍ A / UEFA A þjálfaragráða eða UEFA Elite Youth A-gráða.
· Reynsla af þjálfun barna og unglinga eða meistaraflokka.
· Reynsla af því að leiða, styðja eða handleiða þjálfara er kostur.
· Góð þekking á uppbyggingu yngri flokka starfs og langtímaþróun leikmanna.
· Framúrskarandi samskiptafærni, leiðtogahæfni og hæfni til að vinna í teymi.
· Skipulögð, sjálfstæð og fagleg vinnubrögð.
· Jákvætt viðhorf, metnaður og áhugi á að byggja upp öflugt knattspyrnuumhverfi.
· Góð tölvukunnátta og hæfni til að nýta stafrænar lausnir í skipulagi, fræðslu og samskiptum er kostur.
· Hreint sakavottorð er skilyrði.
Við bjóðum
· Spennandi og fjölbreytt starf hjá rótgrónu félagi með sterka samfélagslega tengingu.
· Tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á þróun yngri flokka starfs Þróttar.
· Metnaðarfullt starfsumhverfi með öflugum iðkendum, þjálfurum og sjálfboðaliðum.
· Vettvang til að móta faglega uppbyggingu, menningu og framtíð knattspyrnustarfs félagsins.
Starfshlutfall og starfsstöð
Um er að ræða fullt starf með starfsstöð í félagshúsi Þróttar, Engjavegi 7, 104 Reykjavík.
Umsóknir
Áhugasamir eru hvattir til að senda ferilskrá og kynningarbréf á nonni@trottur.is.
Jafnframt er velkomið að hafa samband vegna starfsins við Jón H. Jóhannsson, framkvæmdastjóra Þróttar, í síma 865-6404 eða Jens Sævarsson, stjórnarmann í barna- og unglingaráði Þróttar, í síma 616-7235.
Umsóknarfrestur er til 25. ágúst 2026.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
Knattspyrnufélagið Þróttur
Leave a Reply