Lokahóf Dómarafélags Þróttar

Á dögunum var haldið lokahóf Dómarafélags Þróttar þar sem dómarar voru verðlaunaðir fyrir vel unnin störf í þágu félagsins á liðnu keppnistímabili.

731 störf á tímabilinu sem var að ljúka og sá Dómarafélag Þróttar um um tæplega 50% allra starfa fyrir félagið og iðkendur 46%. Í 2. – 4. flokki mannar Dómarafélagið öll störf dómara og hafa iðkendur komið öflugir inn í störf aðstoðardómara.

Þann 1. nóvember næstkomandi verður lokahóf ungra dómara hjá Þrótti haldið þar sem iðkendur verða heiðraðir fyrir frábær störf sín fyrir félagið.

Þróttur fékk árið 2024 hvatningarverðlaun í dómaramálum hjá KSÍ og árið 2025 fékk Þróttur viðurkenningu sem fyrirmyndarfélag í dómaramálum frá KSÍ. Þróttur hefur sett mikinn metnað í dómaramálin sem er iðkendum til heilla enda er borin virðing fyrir iðkendum félagsins og verður leikurinn betri fyrir vikið. Slíkt starf er síður en svo sjálfsagður hlutur enda dómaramál í skötulíki á mörgum stöðum og virðing fyrir þessu mjög svo mikilvæga starfi ekki nægilega mikil. Þessu hefur Þróttur breytt.

Það er vilji félagsins að fá enn fleiri í starfið á komandi vetri því félagsskapurinn er skemmtilegur, hreyfingin góð og umfram allt eru dómararnir að láta gott af sér leiða fyrir yngri kynslóðirnar hjá félaginu. Það kostar ekkert að vera með, bara gefa af sér nokkra klukkutíma á ári og njóta þess að vera þátttakendur í bestu íþrótt í heimi.

Við höfum séð fjölskyldutríó í ár, hjón dæmdu saman og það er metnaður Dómarafélagsins að fjölga stelpum/konum í dómgæslu í ár. Eins og sjá má á myndunum þykir öllum þetta hin prýðilegasta skemmtun!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>