Viktor Andri gengin til liðs við Þrótt

Viktor Andri Hafþórsson hefur skrifað undir 3ja ára samning um að leika með Þrótti. Viktor er f. 2001 og kemur til Þróttar frá Keflavík þar sem hann lék 16 leiki í efstu deild síðastliðið sumar. Viktor er öflugur framherji, fljótur og sterkur og ætlað að styrkja sóknarleik okkar Þróttarar næstu árin. Viktor er alinn upp í Fjölni, í heild hefur hann leikið 37 leiki í efstu deild og 33 í þeirri næst efstur. Að auki á hann að baki landsleiki með u17 ára landsliðinu. Við bjóðum Viktor Andra velkominn í Þrótt.