Nýverið samþykkti Aðalstjórn Þróttar nýja stefnu félagsins til næstu þriggja ára. Stefnan er sett fram í Stefnuþríhyrning Þróttar og efst í honum má finna gildi félagsins sem allir eiga að geta tengt við:
Virðing – Árangur og Gleði.
Jafnframt tekur stefnan skýrt á framtíðarsýn, hlutverki og lykilmarkmiðum félagsins.
Stefnur og gildi deilda og flokka innan félagsins skulu tala við og styðja stefnu félagsins.
Hér má sjá í stuttu myndbandi Bjarnólf Lárusson formann Aðalstjórnar Þróttar kynna stefnuna.
![](https://trottur.is/wp-content/uploads/2024/04/stefnuthrihyrningur-1024x616.png)
Lifi Þróttur !