Námskeið – byrjendablak fyrir fullorðna

Byrjendablak námskeið 2024

Blakdeildin hefur haldið vinsæl námskeið fyrir fullorðna byrjendur í blak undanfarin ár. Nú er nýtt námskeið að hefjast og hvetjum við alla að skrá sig og prufa þessa skemmtilegu íþrótt. Æfingar fara fram á fimmtudagskvöldum í Laugardalshöll. Það er velkomið að koma og prófa 1 æfingu án skuldbindinga.

Hægt er að senda fyrirspurnir á blak@trottur.is.