Jelena Tinna Kujundzic hefur framlengt samning sinn við Þrótt út árið 2026 og mun því leika með kvennaliði félagsins næstu tvö árin.
Jelena er uppalinn Þróttari, hefur leikið fyrri félagið alla tíð og hefur þrátt fyrir ungan aldur verið í lykilhlutverk í mfl. kvenna í þó nokkur ár. Hún á að baki yfir 170 keppnisleiki þegar allt er talið, þar af 89 í efstu deild.
Jelena hefur leikið með yngri landsliðum Íslands undanfarin ár, landsleikirnir eru orðnir 10 og á eftir að fjölga ef fram fer sem horfir og hún var nú síðast valin í u23 ára landsliðið eftir frábært tímabil fyrir Þrótt þar sem hún var valinn leikmaður ársins.
Kristján Kristjánsson, formaður Knattspyrnudeildar Þróttar segir; ,,Við fögnum þessum samning við Jelenu sem hefur verið og verður áfram einn okkar mikilvægasti leikmaður. Tryggð hennar við félagið er mikilsverð. Þessi samningur er fyrsta stóra skrefið sem við stígum við undirbúning liðs meistaraflokks kvenna fyrir næsta tímabil og við stefnum ótrauð að því að Þróttur verði áfram meðal bestu liða landsins eins og verið hefur undanfarin ár.”