Knattspyrnudeild Þróttar og Guðmundur Axel Hilmarsson hafa komist að sameinginlegri niðurstöðu um að loka samningi Guðmundar við félagið frá og með þessu hausti. Guðmundur er uppalinn í Þrótti og hefur leikið með félaginu mestan part síns ferils en hefur einnig komið við á Selfossi og var á láni hjá Haukum á síðasta tímabili.
Guðmundur Axel hafði þetta að segja við tímamótin. ,,Vil koma á framfæri þökkum til leikmanna, þjálfara og stjórnarmanna sem ég hef unnið með seinustu 5 ár í meistaraflokki sem og stuðningsmanna félagsins sem hafa staðið við bakið á okkur seinustu ár. Ég verð alltaf mikill Þróttari og óska Þrótturum góðs gengis í framtíðinni, lifi þróttur!“
Guðmundur á að baki 15 unglingalandsleiki fyrir Ísland. Það verður eftirsjá af Guðmundi Axeli úr Þrótti, miðvörður sem þróaðist í miðherja og lagði sig alltaf allan fram fyrir félagið.
Við óskum honum velgengni utan sem innan vallar.