LIFI KORT – SLÁÐU Í TAKT VIÐ HJARTAÐ Í LAUGARDALNUM!

LIFI kortið er nýtt rafrænt áskriftarkort Þróttar og með kaupum á því styður þú ekki bara félagið þitt heldur verður um leið partur af þéttum og skemmtilegum hópi stuðningssveitar Þróttar, innan vallar sem utan, frá yngstu flokkum alla leið upp í meistaraflokk.

Kortið kostar aðeins 2.500 krónur á mánuði og því fylgja eftirtalin fríðindi:

  • Aðgangur á alla heimaleiki meistaraflokks karla og kvenna í Íslandsmóti (blak og fótbolti).
  • Afsláttur og forsala á viðburðum sem Þróttur stendur fyrir (Þorrablót, herra- og konukvöld, sveitaball).
  • Afsláttur af salarleigu í Þróttarheimilinu.
  • Frítt kaffi í Þróttarheimilinu.
  • Afslættir hjá sérvöldum samstarfsaðilum í hverfinu okkar.
  • Tilboð í sjoppunni á AVIS vellinum.
  • Forsala og sérkjör á LIFI varningi.

Klikkaðu hér og tryggðu þér kortið!

Ekki klikka á kortinu, það margborgar sig!
LIFI ÞRÓTTUR!