Viktor Steinarsson skrifar undir nýjan 3ja ára samning

Áfram með smjörið Þróttarar; við endurnýjuðum samning við einn af okkar bestu drengjum nýverið, því Viktor Steinarsson hefur skrifað undir nýjan 3ja ára samning og verður hjá okkur út 2027. Viktor er fæddur 2004, gegnheill Þróttari sem hefur leikið upp alla yngri flokka félagsins og einn margra uppalinna leikmanna á svipuðum aldri sem nú gegna lykilhlutverk í karlaliðinu. Bakvörður er hann, sókndjarfur, snöggur, lipur og metnaðarfullur og á eftir að gleðja Þróttara í mörg ár enn. Fögnum þessu. #lifi