Aðalfundur félagsins fór fram í gær, 29. maí, þar sem Bjarnólfur Lárusson var kosinn sem áframhaldandi formaður félagsins og Baldur Haraldsson til áframhaldandi stjórnarsetu næstu tvö árin. Halla Björgvinsdóttir gef ekki kost á sér áfram í aðalstjórn félagsins en tekur sæti sem varamaður og í hennar stað var kosinn til tveggja ára í aðalstjórn, Einar Örn Einarsson, sem hefur setið sem varamaður frá síðasta aðalfundi. Birna Hafstein var þá kjörin ný inn í varamaður í Aðalstjórnar.
Aðalstjórn félagsins skipa
Formaður – Bjarnólfur Lárusson
Stjórnarmenn:
Einar Örn Einarsson
Baldur Haraldsson
Katrín Atladóttir
Jóhanna Klara Stefánsdóttir
Varamenn:
Björn Hlynur Haraldsson
Birna Hafstein
Halla Björgvinsdóttir
Elísabet Ásmundsdóttir
Við þökkum félagsmönnum fyrir góðan fund sem lauk svo með góðum sigri okkar manna á liði Völsungs frá Húsavík á AVIS vellinum.